Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
14.4.2009 | 20:16
Íbúasamtökin Betra Breiðholt boðar til stjórnmálafundar í sal Breiðholtsskóla kl. 20.00 hinn 16. apríl n.k.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt boðar til stjórnmálafundar um málefni er varða íbúa Breiðholts í sal Breiðholtsskóla 16. apríl kl. 20:00.
Á fundinum verður einn fulltrúi frá hverju stjórnmálaafli. Fyrir hönd viðkomandi stjórnmálahreyfingar gefst þessum fulltrúa tækifæri á að koma málefnum Breiðholtsins, eins fjölmennasta hverfi landsins, á framfæri.
Pallborðsumræður verða þar sem Breiðhyltingar geta spurt frambjóðendur spurninga um það sem þeim liggur á hjarta.
Heitt á könnunni.
Allir velkomnir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2009 | 21:07
Fundur með frambjóðendum í Breiðholtsskóla 16. apríl
Stjórn Íbúasamtakana Betra Breiðholt undirbýr um þessar mundir fund með fulltrúum þeirra stjórnmálaafla sem bjóða fram til Alþingiskosninga í apríl 2009.
Breiðholtið og íbúar þess verða að sjálfsögðu helsti dagskráliðurinn og mun gestum verða gefin kostur á að leggja spurningar fyrir frambjóðendur um stefnumál þeirra.
Fundurinn verður auglýstur nánar þegar nær dregur.
17.2.2009 | 23:15
Betra Breiðholt og hverfisráð álykta í kjölfar fundar með yfirmönnum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
Ályktun Íbúasamtakanna Betra Breiðholt og hverfisráðs Breiðholts samþykkt á sameiginlegum fundi 17.2.2009.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt og hverfisráð Breiðholts lýsa ánægju sinni með góðan fund sem haldinn var í Þjónustumiðstöð Breiðholts með yfirmönnum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þann 17. febrúar sl. Á fundinn mættu þeir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn. Fundurinn var upplýsingarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi og staðsetningu lögreglustöðva.
Til stendur að sú lögreglustöð sem sinna mun Breiðholtinu verði sú sem staðsett er á Dalvegi en 1-2 lögreglumenn munu hafa aðsetur í Þjónustumiðstöð Breiðholts þar sem þeir munu vinna í nánu samstarfi við starfsmenn hennar og skólanna. Fram kom hjá lögreglustjóra að þessar breytingar munu verða af hinum góða fyrir íbúana, fleiri lögreglumenn munu verða á Dalvegi og þar með vera sýnilegri út í hverfinu.
Íbúsamtökin og hverfisráð vill hvetja yfirstjórn lögreglunnar til að boða Breiðhyltinga svo fljótt sem auðið er til fundar og fara gaumgæfilega yfir þessar hugmyndir enda hafa íbúar haft af þessu áhyggjur. Fram kom hjá lögreglu að meginmarkmið breytingana eru að efla forvarnir, fyrirbyggjandi aðgerðir og efla löggæslu í Breiðholti. Þessum yfirlýsingum ber að sjálfsögðu að fagna þar sem ríkt hafa náin tengsl milli íbúa og lögreglu fram til þessa.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt og hverfisráð óska eftir að haft verði samráði við Íbúasamtökin og hverfisráð um kynningu á frekari útfærslu og fyrirhugaða starfsemi lögreglunnar í Þjónustumiðstöðinni og í hverfinu. Í framhaldi af íbúafundi munu Íbúasamtökin og hverfisráð taka endanlega afstöðu til hugmynda lögregluyfirvalda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2009 | 08:05
Heimsdagur barna á Vetrarhátíð
laugardaginn 14. febrúar kl. 13.00-17.00
Heimsdagur barna
á Vetrarhátíð
Verið velkomin á Heimsdag barna!
Listsmiðjur tengdar litríkri menningu ýmissa þjóða standa frá 13.00-16.00.
Í lokin frá kl. 16.00-17.00 verður boðið upp á skemmtidagskrá
og fjörugt salsaball í A-sal á efri hæð Gerðubergs.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar !
Café Haiti er með útibú í Miðbergi og býður upp á ilmandi kaffi og góðgæti!
Nánari dagskrá er að finna á www.gerduberg.is
Dagskrá í sal kl. 16.00-17.00:
Félagar úr hópnum Ice on fire sýna Hip hop dans
Jón Víðis, töframaður, sýnir töfrabrögð með sápukúlum
Börn úr söng- og leiklistarskólanum Sönglist troða upp
Edna Mastache slær upp salsaballi fyrir alla fjölskylduna
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700
L I S T S M I Ð J U R :
Myndlist og manneskjur
- eru allir öðruvísi? Flökkusýning
Listasafns Reykjavíkur
Opin listsmiðja í samstarfi við
Listasafn Reykjavíkur þar sem krökkum
er boðið að búa til sjálfsmynd
úr orðum og öðrum efnivið.
Sviðsbardagalist
til sjálfsstyrkingar smiðja
Sviðsbardagi í bland við leiklist
Maracas hristusmiðja
Komið og búið til ykkar eigin maracas
hristur eins og notaðar eru í
suður-amerískri tónlist.
Lífræn kviksjá
Upplifðu ævintýraheim ljóss og skugga.
Risastór kviksjá gerir manneskjuna að
lítilli ögn og ný form myndast þegar
stigið er inn í kviksjána.
Origami föndursmiðja
Lærðu að búa til listaverk úr
pappír eftir reglum japönsku pappírslistarinnar
Origami.
Brúðuleikhússmiðja og sýning
Boðið verður upp á brúðuleikhússýninguna
Mjallhvíti kl 13:30 á bókasafninu.
Eftir sýninguna geta áhorfendur
búið til sínar eigin leikbrúður.
Sjóræningjasmiðja
Komið og búið til sjóræningjasverð,
lepp fyrir augað og perlufesti
og kíkið á sjóræningjabíó!
Hiphop og break danssmiðja
Þessi vinsæli götudans þróaðist á
götum New York á 8. og 9. áratugnum.
Lærðu nokkur vel valin spor við
taktfasta hiphop tónlistina.
Sápukúlusmiðja
Æfið ykkur í að blása sápukúlur
af öllum stærðum og gerðum
úr ótrúlegustu tækjum!
Krökkum verður boðið upp á skrautlega andlitsmálningu
7.2.2009 | 14:05
Breiðholtið gjarnan nefnt í neikvæðu samhengi
Fréttin um konuna sem fannst látin í dúfnakofa í Kapelluhrauni hefur vakið athygli ekki einungis fyrir það hversu sorglegur atburður þetta er heldur einnig að sérstaklega var tekið fram í fréttum um málið að hinn grunaði, sambýlismaður konunar og konan hafi átt heima í Breiðholti.
Íbúum í Breiðholti finnst nóg um með hvaða hætti fjölmiðlar nefna Breiðholtshverfið þegar verið er að flytja fréttir um ofbeldis- eða annan glæpsamlegan verknað.
Því hefur verið haldið fram að sumir fréttamenn hafi tilhneigingu til að nefna Breiðholtið í neikvæðu samhengi. En þegar glæpsamlegt athæfi á sér stað í öðrum hverfum sé oftar látið hjá líða að tilgreina þau hverfi í fréttum um athæfið.
Það er mat stjórnar Íbúasamtakanna að ekki hafi verið nauðsynlegt að upplýsa um búsetu fólksins sérstaklega þegar fluttar voru fréttir um þennan ákveðna atburð.
Íbúar í Breiðholti eru langþreyttir á neikvæðri umfjöllun fjölmiðla um Breiðholti. Slíkur fréttaflutningur skaðar ímynd hverfisins og gefur almenningi þar með bæði ranga og ósanngjarna sýn á hverfið og íbúa þess.
Hlúa þarf að ímynd BreiðholtsinsStjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.2.2009 | 23:22
Hörð mótmæli gegn því að leggja niður lögreglustöðina í Breiðholti
Á stjórnarfundi Íbúasamtaka Betra Breiðholt þann 3. febrúar var gerð ályktun vegna þeirrar hugmyndar sem borið hefur á góma og m.a. heyrst í fréttum að leggja ætti niður lögreglustöðina í Breiðholti. Ályktunin hljóðar eftirfarandi:
Íbúasamtökin Betra Breiðholt eru uggandi yfir þeim fréttum að leggja eigi niður lögreglustöðina í Breiðholti. Valda þessi tíðindi íbúum hverfisins miklum áhyggjum. Mikilvægi þess að hafa stöðina í Breiðholtinu hefur margsannað sig og er með þessu verið að brjóta niður það góða samstarf sem hefur myndast milli lögreglu, skóla, leikskóla og íbúa.
Vegna þess hversu Breiðholtið er stórt, fjölmennt og dreift hverfi er brýnt að aðsetur lögreglu sé í kjarna þess.
Íbúar harma jafnframt að ekki sé haft samráð við íbúa í svo stórum málum eins og niðurlagning lögreglustöðvar er og álíta slík vinnubrögð forkastanleg.
Íbúasamtökin mótmæla því eindregið að lögreglustöðin í Breiðholti verði lögð niður.
Á fundinum var jafnframt tekin sú ákvörðun að varaformaður Íbúasamtakanna setti sig í samband við lögreglustjórann í Reykjavík og falaðist hjá honum eftir frekari upplýsingum um málið.
31.1.2009 | 08:51
Lögreglustöðinni í Breiðholti lokað?
Til stendur að nær öll almenn löggæsla á höfuðborgarsvæðinu verði færð út í hverfisstöðvar á svæðinu. Samkvæmt upplýsingum eiga hverfisstöðvarnar að verða við Hverfisgötu, í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og vesturbæ Reykjavíkur.
Nái þessar tillögur fram að ganga mun lögreglustöðinni í Breiðholti loka.
Þessi ákvörðun veldur áhyggjum því óttast er að með þessu fyrirkomulagi myndist fjarlægð milli lögreglunnar og Breiðholtsbúa en samstarf fram til þessa hefur verið náið og gott.
Lögreglustjórinn í Reykjavík vill þó að það komi fram að með þessu megi fólk ekki halda að lögregla sé að draga sig frá sveitarfélögunum. Hann segir að á hverri þjónustumiðstöð verði aðstaða fyrir hverfislögreglumann sem vinni með skóla- og félagsmálayfirvöldum.
Verði þessi skipulagsbreyting að veruleika þykir óttast margir að gerist alvarlegur atburður í Breiðholti sé hætta á að viðbragðstími lögreglu sé lengri hafi þeir t.d. aðsetur í Kópavogi.
28.1.2009 | 10:02
Fullur salur í Breiðholtsskóla í gærkvöldi
Það var mikil aðsókn á fundinn í Breiðholtsskóla í gærkvöldi en hann fjallaði um hvernig við getum kennt börnum okkar að varast kynferðisafbrotamönnum. Fyrir þessum viðburði stóð foreldrafélag skólans.
Lögreglan reið á vaðið og fór yfir sínar vinnureglur. Hún hvatti fólk til að hafa samband yrði það vart við einhvern einstakling í hverfinu sem viðhefði grunsamlegt athæfi.
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði fór yfir með hvaða hætti skólinn og foreldrar gætu sameinast um að ræða við börnin um þessi mál. Einnig að þau börn sem ekki hefðu fengið næga og viðeigandi fræðslu væru í hvað mestri áhættu. Farið var yfir hver væru helstu grunnhugtök fræðslunnar og hvaða lesefni væri fáanlegt. Forvarnir af þessum toga sem byrja snemma gera börnin hæfari í að lesa umhverfið, meta aðstæður og greina muninn á atferli sem telst rétt og eðlilegt og hvenær það er ósiðlegt og ólöglegt.
Fundinum lauk með því að Sigríður Björnsdóttir frá samtökunum Blátt Áfram sagði gestum frá sinni reynslu en hún var um árabil þolandi kynferðislegs ofbeldis á heimili.
23.1.2009 | 10:50
Fundur í Breiðholtsskóla í kvöld
Hvernig verndum við börnin fyrir kynferðislegu ofbeldi?
Fræðslufundur í sal Breiðholtsskóla þriðjudagskvöldið 27. janúar kl. 19.30.
Í samfélaginu leynast víða hættur, sumar þeirra eigum við auðvelt með að fræða börnin okkar um - eins og til dæmis umferðina - en aðrar eru flóknari. Hættan á kynferðislegu ofbeldi er staðreynd sem við vitum oft á tíðum ekki hvernig best er að nálgast.
Foreldra- og kennarafélag Breiðholtsskóla efnir til fræðslufundar nk. þriðjudagskvöld þar sem fyrirlesarar munu ræða hvernig við kennum börnum að þekkja mörkin, hvernig foreldrar tala við börn um kynferðislegt ofbeldi og ábyrgð annarra í umhverfi barna og samfélagsins.
Fyrirlesarar fundarins eru:
-Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, sjá nánar á http://kolbrun.ws/
-Sigríður Björnsdóttir frá samtökunum Blátt áfram, sjá nánar á
www.blattafram.is
-Fulltrúi frá hverfislögreglu
Forvarnir eru sterkasta vopnið og þær snúast um fræðslu.
Stjórn FOK
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.1.2009 kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2009 | 10:00
Tilmæli til skólastjórnenda í Breiðholti
Á fundi ÍBB þann 21. janúar s.l. samþykkti stjórn Íbúasamtakana að beina eftirfarandi tilmælum til skólastjórnenda:
Að þeir bjóði upp á umræðu,- og fræðsluvettvang um varnir og viðbrögð við kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Mikilvægt er að fræðslan sé í samráði við foreldra, fagaðila og grasrótarsamtök.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 16.12.2009 Metnaðarfullt ár framundan hjá Íbúasamtökunum Betra Breiðholt
- 19.11.2009 Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholt 23. nóvember.
- 13.11.2009 Aðalfundur Íbúasamtaka Betra Breiðholt
- 19.10.2009 Breiðholtsdagar eru hafnir. Metnaðarfull dagskrá yfirfull af ...
- 18.10.2009 Stórkostlega vel heppnaður Markaður Íbúsasamtaka Betra Breiðh...
- 11.10.2009 Markaður í Mjódd í aðdraganda Breiðholtsdaga, laugardaginn 17...
- 5.10.2009 Geðgóður dagur í Mjóddinni á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum 10...
- 27.9.2009 Söngleikur fyrir börn í Gerðubergi
- 7.9.2009 Handverkskaffi í Gerðubergi
- 7.9.2009 Breiðholtsdagar 19.- 25. október.
- 4.6.2009 Fjölmennur fundur um löggæslumál í Breiðholti haldinn í Selja...
- 26.5.2009 Almennur borgarafundur um lögregluna í Breiðholti
- 24.5.2009 Fundir með götustjórum í Breiðholti
- 16.5.2009 Ósmekkleg og sennilega ólögleg auglýsing barst í fjölmörg hús...
- 15.5.2009 Iðandi líf í Breiðholti. Allir aldurshópar eru að gera eitthv...
Bloggvinir
- annakr
- aslaugfridriks
- bjorkv
- brandarar
- bryndisisfold
- bustadahverfi
- dofri
- doggpals
- don
- gurrihar
- hlidar
- ingabesta
- ipanama
- jorunnfrimannsdottir
- kalli
- kolbrunb
- laugardalur
- margretsverris
- morgunbladid
- mussi
- neytendatalsmadur
- nonniblogg
- otti
- reynsla
- sigurdurkari
- soley
- thorbjorghelga
- unnurfridriks
- varmarsamtokin
- vefritid
- arro
- lydveldi
- baldvinj
- haaleitinordur
- birgitta
- bjarnihardar
- dullur
- gattin
- lillo
- gretarmar
- hallarut
- hallurmagg
- harhar33
- ingabaldurs
- larahanna
- altice
- paul
- roslin
- salvor
- sigsaem
- stebbifr
- valgeirskagfjord
- thorsaari
Eldri færslur
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Janúar 2007
- Nóvember 2006
Tenglar
Stofnanir og félagasamtök í Breiðholti
Fyrirtæki sem styðja IBB
Reykjavíkurborg
- 1, 2 og Reykjavík Ábendingarvefur Reykjavíkurborgar
Íbúi með Reynslu
- Reynsla Reynslusögur úr lífinu
- Margbrotið mannlíf í Breiðholti Grein um ímynd Breiðholtsins birt í Breiðholtsblaðinu í apríl 2008
Greinar um Breiðholtið
33 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Sósíalistaflokkur Íslands - tilraun númer tvö!
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna kemur NÝJASTA TÆKNITEIKNINGIN af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????