Leita í fréttum mbl.is

Aðalfundur Íbúasamtaka Betra Breiðholt

Aðalfundur Íbúasamtaka Betra Breiðholt verður haldinn mánudaginn 23. nóvember nk.
í Fella- og hólakirkju í Efra Breiðholti.  Fundurinn hefst 18:00.

Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar lagðir fram
3. Kosning stjórnar
4. Kosning skoðunarmanna reikninga
5. Önnur mál

Nú hafa Íbúasamtökin Betra Breiðholt starfað í þrjú ár.  Fjölmörg mál hafa komið inn á borð samtakanna þar sem þau hafa fengið umfjöllun og eftirfylgni. Íbúasamtökin hafa staðið fyrir ýmsum uppákomum og er þar skemmst að minnast borgarafund vegna löggæslumála í Breiðholti sem haldinn var í Seljakirkju fyrr á árinu og Markaðinum í Mjódd í aðdraganda Breiðholtsdaga.  

Til að freista þess að vekja athygli ráðamanna á ýmsu sem er ábótavant í Breiðholti hefur stjórn Samtakanna átt fundi og fjölmörg samtöl við borgaryfirvöld, fyrrverandi sem og núverandi borgarstjóra. Markmiðið hefur verið að reyna að koma einstaka málum og málefnum í viðeigandi farveg innan borgarkerfisins.

Stjórn Íbúasamtakanna vonast til að mál hafi eitthvað þokast áfram þau ár sem Samtökin hafa starfað en framundan bíða mörg brýn verkefni úrlausnar víða í hverfum Breiðholts.  

Þátttaka í Íbúasamtökum Betra Breiðholts er skemmtileg og gefandi. Samtökin eru vettvangur þar sem fólki sem lætur sér annt um umhverfi sitt gefst kostur á að koma málefnum síns hverfis og nærumhverfis á framfæri og fylgja eftir þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið.

Íbúar Breiðholts eru hvattir til að mæta á aðalfund Íbúasamtaka Betra Breiðholts.
 
Stöndum sameinuð og stuðlum að enn betra Breiðholti!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íbúasamtökin Betra Breiðholt
Íbúasamtökin Betra Breiðholt

Síða þessi er ætluð til að vera samskiptagrundvöllur fyrir alla Breiðholtsbúa.

Stjórn Íbúasamtaka Betra Breiðholts skipa:
Helgi Kristófersson, formaður
Kolbrún Baldursdóttir, varaformaður
Anna Sif Jónsdóttir, ritari
Falasteen Abu Libden, meðstjórnandi
Magnús Gunnarsson, gjaldkeri
Rut Káradóttir, meðstjórnandi
Þorkell Ragnarsson, meðstjórnandi

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband