Leita í fréttum mbl.is

Áskorun vegna umferðaröngþveitis við gatnamótin Reykjanesbraut / Bústaðarveg


Nauðsynlegt er að gangast fyrir því að gerð mislægra við gatnamótin Reykjanesbraut / Bústaðarveg verði boðin út nú þegar. Ástandið á Reykjanesbraut sunnan Bústaðarvegar er t.d. þannig á annatíma á morgnana að ekki er óalgengt að það taki 30 mínútur að aka frá Breiðholti og niður í Kvos og einnig tekur annan eins tíma að aka til baka á kvöldin. Það skal tekið fram að þetta ástand hefur snarversnað síðan í fyrra.
Gerð mislægra gatnamóta á þessum stað kæmi í veg fyrir mörg umferðarslys og yrði mjög þjóðhagslega arðbær framkvæmd. Aukning á aftanákeyrslum hefur verið á þessu svæði sökum þess að umferð hægir á sér um þetta svæði auk þess sem aukinn hægagangur og lausagangur bifreiða á svæðinu er mikill mengunarvaldur. Þessi aukning umferðar kemur samfara breikkun Reykjanesbrautar í suður og þarf því að leysa vandann sem hefur skapast við það.
Hugmyndir um mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar voru kynntar fyrir borgarráði 27.10.2006. Borgarráð féllst ekki á þær útfærslur sem sýndar voru og óskaði eftir útfærslum, um gatnamótin í plani, sem greiða fyrir umferðinni og auka umferðaröryggi.
Kynntar voru tvær meginhugmyndir. Í þeirri fyrri er vinstribeygjurampi af Reykjanesbraut til norðurs og vestur Bústaðaveg lagður í undirgöngum undir Reykjanesbraut, en í þeirri síðari er hann tekinn á brú yfir brautina.
Í greinargerð, sem unnin var af verkfræðistofunni Línuhönnun fyrir Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðina, er gerður samanburður á þessum tveimur hugmyndum hvað varðar umferðartækni, gangandi umferð, biðstöðvar almenningsvagna, umferðaröryggi, umhverfismál og aðgerðir á framkvæmdatíma. Framkvæmdirnar eru umfangsmiklar og því háðar mati á umhverfisáhrifum. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar skv. meginhugmyndum í greinargerðinni er um 430- 490 millj. kr. Á vegaáætlun er gert ráð fyrir fjármagni til þessara framkvæmda á árinu 2008. Nú er tíminn kominn að standa við orðin en ekki sitja heima og lesa.
F.h. stjórnar ÍBB

Helgi Kristófersson
formaður
http://ibb.blog.is

Það er hægt að finna meðfylgjandi myndir á:

http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-512/436_read-4579/

 





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er það svo að ég rak augun í þá hugmynd um daginn að loka ætti fyrir vinstri beygjur á þessum gatnamótum. Sú var tíðin að ég var mjög hrifinn af minni eigin hugmynd um að gera Bústaðarveginn að einskonar stofnbraut með tilheyrandi breytingu á skipulagi. Í dag verð ég þó að segja að það sé kannski alveg vert að athuga þessa hugmynd frekar en að kokgleypa umhverfislýti eins og mislæg gatnamót svo sannarlega eru.

Annars er ég búinn að búa hérna í Breiðholtinu í u.þ.b.  13 ár  og ég vil nota tækifærið og láta alla vita sem eru að skoða sig um með tilliti til kaupa á fasteign að halda sig eins langt frá þessum stað og það getur. Hér er allt frekar morkið og ömurlegt. Hér er ekkert viðhald og ekkert við að vera. Hverfið er illa skipulagt! Reyndar mæli ég með að fólk finni sér íbúð vestan Elliðaáa og að Breiðholtið verði rifið eða kannski á að láta það standa og gera það að safni til marks um heimsku og vanvit borgarfulltrúa og verkalýðsforkólfa landsins en þeir bera einmitt ábyrgð á þessum ósköpum til að byrja með og ekkert lát virðist vera á þessari heimsku sem heltekur borgarfulltrúa okkar. Afleiðing Breiðholtsins og annara álíkra staða eru frekjustælar einstaklinga sem búa í kastalabyggingum sínum. Þeir hafa alið sinn mann fjarri mannlífinu, eru orðnir firrtir. Fyrir vikið eru hér einstaklingar sem vilja ekkert nálægt sér en vilja jafnframt að borgað sé undir óæðri endan á sér af því að það getur ekki lifað lífinu á eðlilegan hátt. Það vill það ekki kæru borgarfulltrúar, það vill geta skotist niður í bæ hvenær sem það vill á tíu mínútum sem er ekki hægt nema að keyra ólöglega reyndar. Ég held það sé búið að ofala Íslendinga og gott dæmi um það eru íbúar Breiðholtsins, eins og sést berlega á þessari síðu. Það bara vill og gefur ekkert af sér, gerir bara kröfur. Lífið er erfitt og það á sínar mismunandi hliðar. Stundum er það gott líka, en við getum ekki alltaf fengið allt sem við viljum. Verum sátt við það sem við eigum.

Kær kveðja,

Ólafur Helgi Harðarson 

Ólafur Helgi Harðarson (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íbúasamtökin Betra Breiðholt
Íbúasamtökin Betra Breiðholt

Síða þessi er ætluð til að vera samskiptagrundvöllur fyrir alla Breiðholtsbúa.

Stjórn Íbúasamtaka Betra Breiðholts skipa:
Helgi Kristófersson, formaður
Kolbrún Baldursdóttir, varaformaður
Anna Sif Jónsdóttir, ritari
Falasteen Abu Libden, meðstjórnandi
Magnús Gunnarsson, gjaldkeri
Rut Káradóttir, meðstjórnandi
Þorkell Ragnarsson, meðstjórnandi

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband