Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
27.9.2009 | 20:33
Söngleikur fyrir börn í Gerðubergi
Út í kött! Nýr dans- og söngleikur fyrir börn í Gerðubergi
Sýningar Lýðveldisleikhússins á barnaleikritinu Út í kött! hefjast að nýju um helgina í Gerðubergi. Út í kött! er nýr dans og söngleikur fyrir börn á öllum aldri sem var frumsýndur síðastliðið vor. Verkið er ævintýraleikur og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Skólum, leikskólum og foreldrafélögum gefst kostur á að kaupa sýningar á sérstökum afsláttarkjörum og geta þeir sent fulltrúa sína á sýningarnar um helgina í Gerðubergi til að kynna sér verkið. Sýningarnar verða laugardaginn 26. september og sunnudaginn 27. september og hefjast kl. 14.
Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlýgin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur á erfitt með að sætta sig við þennan gest sinn, enda snýr hún heimi hans, þar sem hetjur teiknimynda og tölvuleikja eru karlmenn, á hvolf. Með fjörugu ímyndunarafli sínu nær hún að sýna honum að tilveran þarf ekki að vera niðurnjörvuð í fyrirfram ákveðin hólf og kassa. Sögur Helgu Soffíu eru þrjú Grimms-ævintýri byggð á útgáfum Roalds Dahl og fléttast þau inn í leikverkið með tónlist, dansi og söng. Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og grísir en Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust og Öskubuska áttar sig á að hamingjan felst ekki í því einu að vera fótnett og fríð.
Tvö tólf ára börn fara með hlutverk Erps og Helgu Soffíu, þau Fannar Guðni Guðmundsson og Sóley Anna Benónýsdóttir, Ragnheiður Árnadóttir söngkona fer með hlutverk sögumanns, og leikararnir Finnbogi Þorkell Jónsson og Ólöf Hugrún Valdemarsdóttir fara með hlutverk geimskrímsla og ýmsra ævintýrapersóna t. d. Rauðhettu og úlfsins og Öskubusku og prinsins. Benóný Ægisson er höfundur handrits, semur tónlistina og þýðir kvæði Roald Dahl, Kolbrún Anna Björnsdóttir er leikstjóri Sigríður Ásta Árnadóttir gerir búningana en Kristrún Eyjólfsdóttir leikmyndina .
Markmiðið með sýningunni er að skemmta og vekja börn og fullorðna til umhugsunar um birtingarmyndir staðalmynda í umhverfi barnanna. Mikilvægi skapandi og gagnrýninnar hugsunar er seint ofmetið og því brýnt að börnin fái tæki og tól í hendurnar til að takast á við flóðbylgju skilaboða úr umhverfinu. Sýningin er farandsýning og með henni fylgir kennsluefni sem gefur kennurum tækifæri til frekari úrvinnslu á grundvelli leiksýningarinnar. Sýningin gæti m.a. nýst í kennslu í íslensku, lífsleikni, leiklist og tónlist.
Miðapantanir eru á lydveldisleikhusid@gmail.com og í boði eru tveir miðar. Taka þarf fram fyrir hvaða stofnun eða félag viðkomandi er fulltrúi fyrir.
Nánari upplýsingar um sýninguna eru á vef Lýðveldisleikhússins www.this.is/great
7.9.2009 | 16:32
Handverkskaffi í Gerðubergi
Fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði er handverkskaffi í Gerðubergi. Á þessum kvöldum er á kaffihúsi hússins boðið upp á stuttar og skemmtilegar kynningar á ýmiskonar handverki. Markmiðið með handverkskaffi er að bjóða upp á notalega kvöldstund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, hlýtt á ýmsan fróðleik, spjallað og unnið handavinnu. Umfjöllunarefnin á kynningum þessara kvölda eru fjölbreytt eins og dagskrá haustsins ber með sér. Fyrsta handverkskaffi haustsins er miðvikudagskvöldið 2. september. Yfirskrift kvöldsins er Flækjur og fínerí prjónamenning á vefnum. Ragnheiður Eiríksdóttir mun leiða gesti um prjónamenningu á veraldarvefnum, en þar er að finna ótæmandi hugmynda- og upplýsingabrunn fyrir prjónara. Myndir, leiðbeiningar, prjónaspjall, sýnikennsla og uppskriftir eru meðal þess sem þar má finna. Ragnheiður, eða Ragga, er mikil prjónakona, og er annar tveggja höfunda bókarinnar Prjóniprjón og virkur vefnotandi. Kjörorð hennar eru: "Prjón, frelsi, hamingja"
Í október mun Darren Foreman kynna henna húðskreytilist. Henna er tímabundið húðflúr sem á sér aldalanga hefð í austrænni menningu og tengist sérstaklega brúðkaupum. Skreytilistin tengist upprunalega ýmiskonar hátíðarhöldum, sérstaklega brúðkaupum og skreytingu brúðarinnar. Kynningin er hluti af verkefninu Húmor og Amor á vegum menningarstofnanna Reykjavíkurborgar. Í nóvember sýnir Björn Finnsson pappírslistina Origami. Bréfbrot eða origami er ævaforn japönsk listgrein sem felst í að búa til skrautmuni með því einu að brjóta saman pappír. Í desember verður síðan jólastemmning yfir handverkskaffinu en þá mun Guðrún Sigríður Ágústsdóttir búa til nokkrar einfaldar gerðir jólakonfekts fyrir gesti. Sirrý leggur áherslu á skemmtilegar og einfaldar uppskriftir sem henta allri fjölskyldunni.
Handverkskaffið hóf göngu sína haustið 2008 og naut það mikilla vinsælda síðastliðinn vetur.
Handverkskvöldin hefjast kl. 20 og standa til kl. 22, aðgangur er ókeypis.
Sjá www.gerduberg.is
7.9.2009 | 15:08
Breiðholtsdagar 19.- 25. október.
Undirbúningur er hafinn að Breiðholtsdögum en þeir verða haldnir vikuna 19. - 25. október nk.
Að vanda verður dagskrá fjölbreytt og mun einkennast mest af því að fólk er að kynna sínar hugmyndir og opnum og jákvæðum umræðum.
Stjórn Íbúasamtaka Betra Breiðholts mun hittast á sínum fyrsta haustfundi næstkomandi þriðjudag og leggja á ráðin með hvaða hætti Samtökin geti komið að Breiðholtsdögum.
Nýjustu færslur
- 16.12.2009 Metnaðarfullt ár framundan hjá Íbúasamtökunum Betra Breiðholt
- 19.11.2009 Aðalfundur Íbúasamtakanna Betra Breiðholt 23. nóvember.
- 13.11.2009 Aðalfundur Íbúasamtaka Betra Breiðholt
- 19.10.2009 Breiðholtsdagar eru hafnir. Metnaðarfull dagskrá yfirfull af ...
- 18.10.2009 Stórkostlega vel heppnaður Markaður Íbúsasamtaka Betra Breiðh...
- 11.10.2009 Markaður í Mjódd í aðdraganda Breiðholtsdaga, laugardaginn 17...
- 5.10.2009 Geðgóður dagur í Mjóddinni á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum 10...
- 27.9.2009 Söngleikur fyrir börn í Gerðubergi
- 7.9.2009 Handverkskaffi í Gerðubergi
- 7.9.2009 Breiðholtsdagar 19.- 25. október.
- 4.6.2009 Fjölmennur fundur um löggæslumál í Breiðholti haldinn í Selja...
- 26.5.2009 Almennur borgarafundur um lögregluna í Breiðholti
- 24.5.2009 Fundir með götustjórum í Breiðholti
- 16.5.2009 Ósmekkleg og sennilega ólögleg auglýsing barst í fjölmörg hús...
- 15.5.2009 Iðandi líf í Breiðholti. Allir aldurshópar eru að gera eitthv...
Bloggvinir
- annakr
- aslaugfridriks
- bjorkv
- brandarar
- bryndisisfold
- bustadahverfi
- dofri
- doggpals
- don
- gurrihar
- hlidar
- ingabesta
- ipanama
- jorunnfrimannsdottir
- kalli
- kolbrunb
- laugardalur
- margretsverris
- morgunbladid
- mussi
- neytendatalsmadur
- nonniblogg
- otti
- reynsla
- sigurdurkari
- soley
- thorbjorghelga
- unnurfridriks
- varmarsamtokin
- vefritid
- arro
- lydveldi
- baldvinj
- haaleitinordur
- birgitta
- bjarnihardar
- dullur
- gattin
- lillo
- gretarmar
- hallarut
- hallurmagg
- harhar33
- ingabaldurs
- larahanna
- altice
- paul
- roslin
- salvor
- sigsaem
- stebbifr
- valgeirskagfjord
- thorsaari
Eldri færslur
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Janúar 2007
- Nóvember 2006
Tenglar
Stofnanir og félagasamtök í Breiðholti
Fyrirtæki sem styðja IBB
Reykjavíkurborg
- 1, 2 og Reykjavík Ábendingarvefur Reykjavíkurborgar
Íbúi með Reynslu
- Reynsla Reynslusögur úr lífinu
- Margbrotið mannlíf í Breiðholti Grein um ímynd Breiðholtsins birt í Breiðholtsblaðinu í apríl 2008
Greinar um Breiðholtið
325 dagar til jóla
Nýjustu færslurnar
- Værum skotmark Trumps
- Kyrrstöðustjórn kemur til þings
- Kverkatak
- Fréttirnar eru leiðinlegar, horfum á kvikmyndir:
- Flokkur fólksins með allt niður um sig
- ÞÓ SVO AÐ MÍNIR MENN HAFI UNNIÐ LEIKINN, ÞÁ VERÐA ÞEIR AÐ FARA AÐ NÝTA FÆRIN BETUR
- Dósasöfnun DúnuToggu
- Mættum við fá meira lystrán
- Djúp lægð?
- Banatorfur