Leita í fréttum mbl.is

Borgarstjóri tilbúinn að borga skaðabætur

Fréttablaðið, 06. jan. 2007 00:45

Borgarstjóri tilbúinn að borga skaðabætur
Árið 2004 lét Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri kanna hvort mögulegt væri að banna spilakassa í söluturnum en þeir eru nú um 400 talsins. Alls eru þeir tæplega 1000 á landinu öllu. Borgarstjóri mun eftir helgi fara fram á það við eigendur fyrirtækisins Háspennu að láta af áformum um uppsetningu spilasalar í verslunarmiðstöðinni í Mjódd. Hafni þeir því ætlar borgarstjóri að grípa til aðgerða og er tilbúinn að borga skaðabætur til að ná sínu fram. Hann vill að samfélagið allt skoði hug sinn um hvernig þessum málum verði fyrir komið í framtíðinni.

Inntur eftir því hvort hann ætli að beita sér gegn spilasölum annars staðar í borginni en í Mjódd, til dæmis í öðrum verslunarmiðstöðvum eða þar sem ungmenni koma saman, segir Vilhjálmur að ljóst sé að rekstur spilakassanna sé löglegur og ómögulegt að afturkalla þá starfsemi sem þegar er hafin. „Ég sannreyndi að til að banna spilakassa í söluturnum þarf að grafa mjög djúpt lögfræðilega en mun hins vegar fara yfir þessi mál heildstætt með eigendum spilakassanna og reyna að ná sátt um að þeir séu ekki settir upp í fjölskylduvænum fjölskyldukjörnum í algjörri óþökk íbúanna. Þetta er spurning um íbúalýðræði og það á við í Mjóddinni." Vilhjálmur vill sjá spilasali einskorðaða við borgarhluta sem ætlaðir séu fyrir atvinnustarfsemi. „Þeim væri líka vel fyrir komið í Örfirisey."

Spilakössum hefur fjölgað mikið á síðustu tveimur árum. Alls voru spilakassar 492 í nóvember 2004. 266 kassar voru í eigu Íslandsspils en 226 voru starfræktir af Happdrætti Háskóla Íslands. Nú rekur Íslandsspil 580 kassa og HHÍ 350. Borgarstjóri segist vart trúa þessum tölum og að samfélagið í heild verði að skoða hug sinn um hvert það vilji stefna í framtíðinni.

Brynjólfur Sigurðsson, forstjóri HHÍ, segist hafa sagt Vilhjálmi á fundi þeirra á fimmtudag að hann féllist ekki á rök hans, hvorki hvað varðar aðkomu HHÍ að rekstri spilasalarins né að salurinn hefði neikvæð áhrif á þá sem þangað sækja. „Það átti að banna fólki yngra en tvítugu aðgang og þeim sem neytt höfðu víns eða lyfja. Umsjónarmaður er einnig í öllum spilasölum." Hann harmar að hafa ekki getað kynnt starfsemina fyrir borgaryfirvöldum áður en borgarráð ályktaði gegn starfseminni fyrir jól.
Ekki náðist í eigendur Háspennu við vinnslu fréttarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íbúasamtökin Betra Breiðholt

Við viljum þakka Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóra fyrir að taka upp hanskann fyrir breiðhyltinga og lýsa yfir anstöðu yfir spilakössum í mjóddinni. Það má segja að þetta fyrsta stóra mál íbúasamtaka Breiðholts hafi sýnt fram á hversu mikilvæg íbúasamtök eru. 

Íbúasamtökin Betra Breiðholt, 6.1.2007 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íbúasamtökin Betra Breiðholt
Íbúasamtökin Betra Breiðholt

Síða þessi er ætluð til að vera samskiptagrundvöllur fyrir alla Breiðholtsbúa.

Stjórn Íbúasamtaka Betra Breiðholts skipa:
Helgi Kristófersson, formaður
Kolbrún Baldursdóttir, varaformaður
Anna Sif Jónsdóttir, ritari
Falasteen Abu Libden, meðstjórnandi
Magnús Gunnarsson, gjaldkeri
Rut Káradóttir, meðstjórnandi
Þorkell Ragnarsson, meðstjórnandi

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband