Leita í fréttum mbl.is

Breiðholtsdagar eru hafnir. Metnaðarfull dagskrá yfirfull af uppákomum og sýningum

Breiðholtsdagar verða haldnir hátíðlegir í sjöunda sinn frá 19.-25. október. Yfirskrift daganna verður Hverfið okkar, samheldni - samvinna. En meginmarkmið Breiðholtsdaga er að stuðla að aukinni samheldni, samvinnu, samveru og hverfisvitund íbúa þar sem fólk á öllum aldri kemur saman á ýmsum stöðum til að auðga andann og skemmta sér á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Eins og dagskráin sýnir er af nógu að taka því menningarstarf í Breiðholti er öflugt og framsækið.

Leikskólabörn heimsækja Árbæjarsafn 29. október og í Breiðholtsvikunni sjálfri munu nemendur Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts heimsækja nokkra leikskóla í hverfinu og leika tónlist fyrir börn og starfsfólk. Hátíðarathöfn Breiðholtsdaga verður að þessu sinni í göngugötunni í Mjódd föstudaginn
23. október kl. 16:00 mun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson forseti borgarstjórnar ávarpa gesti og afhenda heiðursviðurkenningar.

 

 

19. október, mánudagur

07:30 Pottagestur í Breiðholtslaug. Borgarlistamaður Reykjavíkur

09:50 Vatnsleikfimi í Breiðholtslaug.

Sýning Jóns Guðmundssonar, plöntulífeðlisfræðings og trérennismiðs á renndum og tálguðum trémunum úr heimaræktuðum viði stendur yfir alla vikuna í Félags- og þjónustumiðstöðinni Árskógum 4 frá kl. 09:00 til 17:00 og um helgina, laugardaginn 24. október og sunnudaginn 25. október er sýningin opin milli kl. 13:00 til 17.00. Kaffi á könnunni um helgina.

 

10:00 Setning Breiðholtsdaga í Hólabrekkuskóla. Brynjar Fransson og fl.

Mjódd, sýning leikskólanna Arnaborgar og Fálkaborgar á myndverkum frá “menningamóti” leikskólabarna í Bakkahverfi stendur út alla vikuna.

14:00 Sýning ljósmynda í Ljósmyndasamkeppni Breiðholts opnuð af Brynjari Franssyni formanni hverfisráðs.

17:30-18:30 KFUK fyrir stúlkur í Seljakirkju, allar stúlkur velkomnar.

18:30 Messa í Maríukirkjunni (alla virka daga).

Olís í Mjódd með tilboð á ýmsum vörum alla dagana.

 

20. október, þriðjudagur

07:30 Pottagestur í Breiðholtslaug Sigmundur Ernir þingmaður og rithöfundur

10:30 Félagsstarfið í Gerðubergi, Sigurður R. Guðmundsson með leynigest og kennir stafgöngu

12:00 Kyrrðarstund í Fella- og Hólakirkju. Tónlist, ritningarlestur og bæn. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu eftir stundina.

13:00-14:00 Nemendur úr Fellaskóla tefla við gesti og gangandi í Göngugötunni í Mjódd

13:00-16:00 Fella- og Hólakirkja. Samvera eldri borgara í umsjá Ragnhildar Ásgeirsdóttur, djákna.

 

21. október, miðvikudagur

07:30 Pottagestur í Breiðholtslaug Gunnlaugur Júlíusson langhlaupari

09.00 Lesum enn meira saman í Fellaskóla. Samstarfsverkefni Menntasviðs, Fellaskóla og Félagsstarfsins í Gerðubergi.

09:50 Vatnsleikfimi í Breiðholtslaug, allir velkomnir.

10:00 Umhverfisverkefnið ,, Garðurinn okkar” kynnt í Félagsstarfinu Gerðubergi, umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir setur formlega af stað nýtt samstarfsverkefni undir forystu eldri borgara.

13:30 Breiðholtskirkja með samverustund Maður er manns gaman, gestur verður sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson.

14:00 Elsa Haraldsdóttir með sönghóp félagsstarfsins í Árskógum og tónlist í Skógarbæ

16:00 6. - 9 ára Kirkjuprakkarar í Breiðholtskirkju, allir krakkar á þeim aldri velkomnir.

20:00 Breiðholtskirkja með Æskulýðsfélagsfund fyrir krakka í 8. bekk.

20:00 Gleðjumst saman í söng - gleðjum aðra með söng”, ókeypis tónleikar í Fella og Hólakirkju, Gerðuberskórinn og Söngfuglar frá Vesturgötu 7. Óskar Pétursson tenór frá Álftagerði syngur.

 

22. október, fimmtudagur

07:30 Pottagestur í Breiðholtslaug Ragnhildur B. Guðjónsdóttir varaformaður Hverfisráðs Breiðholts

10:00-15:00 Iðjuberg Gerðubergi 1, opið hús, heitt á könnunni og sala á munum sem unnin eru í Listiðju og hæfingu.

14:00 Kynning á vinnustofum í félagsstarfinu í Árskógum 4.

16:30-17:30 KFUM starf fyrir drengi í Seljakirkju.

17:00 Íbúaverkefni um framtíð Sekkjaróló við Fremristekk ýtt úr vör með útihátíð á róluvellinum. Stutt ávörp, leikir og veitingar í boði fyrirtækja í Breiðholti

17:45 Handboltaleikur í Austurbergi 3 fl. kv. ÍR-Grótta2

18:00 Seljakirkja með fyrirbænastund, á eftir er boðið upp á kaffi, spjall og gott samfélag

19:00 Handboltaleikur í Austurbergi 3 fl. kv. ÍR-Grótta1

19:30-22:00 Stelpukvöld í Hólagarði kynningar, tilboð, ókeypis happadrætti ofl.

 

23. október, föstudagur

07:30 Pottagestur í Breiðholtslaug Matthías Halldórsson landlæknir

10:00 Félagsstarfið í Gerðubergi, Raggi Bjarna heiðursgestur í prjónakaffi

12:15 Samsöngur í Breiðholtskirkju

13:30 Hátíðarbingó hjá Félagsstarfinu Árskógum 4.

15:00 Þjónustumiðstöð með opið hús og kynningu í göngugötunni í Mjódd

15:00 Göngugatan Mjódd, Tónlist

15:30 Félagsstarfið í Árskógum 4. Harmonikkuball

16:00-18:00 Göngugatan Mjódd, Bahaí samfélagið með kynningu, lifandi tónlist

16:00-17:00 Hátíðasamkoma í Mjódd

Setningarávarp Þorsteinn Hjartarson

Úrslit og verðlaunaveitingar í ljósmyndasamkeppninni Brynjar Fransson formaður hverfisráðs

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson forseti borgarstjórnar afhendir heiðursviðurkenningar.

Vinabandið tekur lagið

17:00-22:00 Breiðholtslaug við Austurberg, frítt í sund

19:30-23:00 Unglingadansleikur í Miðbergi

 

24. október, laugardagur

10:00-16:00 Opið hús hjá Leikni

11:00-14:00 Vináttuleikir Leiknis og ÍR. Yngri flokkar

14:00 Grillaðar pylsur eftir leikina

10:00-16:00 ÍR- kynnir starf sitt í göngugötunni í Mjódd

13:00 Félagsstarfið í Breiðholti stendur fyrir almenningshlaupi til styrktar Grensás, vegalendir eru 1,8 km. og 4 km. Edda Heiðrún Bachmann ræsir, skráningargjald 1.000 kr. og áheit renna heil og óskipt til Grensásdeildar. Hlaupið er frá Breiðholtslaug.

13:00-17:00 Gerðuberg menningarmiðstöð, Litrík menning – gagnkvæm miðlun. Kynning á starfsemi og þjónustu fyrir íbúa af erlendum uppruna

13:00-17:00 Gerðuberg menningarmiðstöð, Flóamarkaður – skráning þátttöku í síma 575 7700, gerduberg@reykjavik.is

14:00-16:00 Göngugatan Mjódd, Bahaí samfélagið með kynningu, lifandi tónlist

14:00-15:00 Gerðuberg menningarmiðstöð, Sóla á sögubílnum Æringja tekur á móti börnum á bókasafninu

15:00-16:30 Gerðuberg menningarmiðstöð, Litrík menning – gagnkvæm miðlun. Umræðusmiðjur með þátttöku listamanna af erlendum uppruna

18:30 Ensk messa í Maríukirkjunni við Raufarsel. Dennis O’Leary messar.

 20:00 Bahaí samfélagið með bænastund og spjall að Krummahólum 2. 6E

Garðheimar með ljósaseríukynningu

 

Sunnudagur 25. október

11:00 Breiðholtskirkja, sunnudagaskóli og messa.

11:00 Fella- og Hólakirkja guðþjónusta.

11:00 Maríukirkjan, messa

12:15 Maríukirkjan, barnamessa

14:00 Seljakirkja, almenn guðþjónusta.

Garðheimar með ljósaseríukynningu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íbúasamtökin Betra Breiðholt
Íbúasamtökin Betra Breiðholt

Síða þessi er ætluð til að vera samskiptagrundvöllur fyrir alla Breiðholtsbúa.

Stjórn Íbúasamtaka Betra Breiðholts skipa:
Helgi Kristófersson, formaður
Kolbrún Baldursdóttir, varaformaður
Anna Sif Jónsdóttir, ritari
Falasteen Abu Libden, meðstjórnandi
Magnús Gunnarsson, gjaldkeri
Rut Káradóttir, meðstjórnandi
Þorkell Ragnarsson, meðstjórnandi

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband